


Krafla
Hlý og þægileg dúnúlpa, sem er síðari en hefðbundnar úlpur. Úlpan er framleidd úr 100% endurunnu efni sem er litað með náttúrulegu litarefni. Úlpan er mjög hlý en hvorki fyrirferðamikil né þunn. Úlpan er einangruð með endurunnum dún sem er 700 fill power.
Endurnýttur dúnn er fenginn úr notuðum dún fatnaði og yfirbreiðslum, hann er síðan hreinsaður og unninn á nánast sama hátt og nýr dúnn og eru því gæðin því fyrsta flokks. Með því að endurnýta dún er líftími hans lengdur í stað þess að afurðin hefði farið í landfyllingu.
Krafla er úr vatnsfráhrindandi og vindheldu efni. Tveir renndir vasar að framan og einn renndur vasi að innan.
- Framleiðsluábyrgð Lestu ábyrgðarskilmálana okkar
- Stíll
Dúnúlpa
Frí heimsending á öllum pöntunum yfir 20.000 ISK
Samkvæmt reglum um rafræn kaup má falla frá kaupum án þess að tilgreina nokkra ástæðu innan 14 daga frá afhendingu vörunnar fyrir fulla endurgreiðslu.
Upplýsingar um skilareglur hér.